Færsluflokkur: Dægurmál
3.6.2007 | 22:25
Smá innskot
Datt í hug að henda inn smá línu hérna til að vekja athygli fólks á því að ég hef ljósmyndir til sýnis og sölu á heimasíðunni minni. Slóðin er http://www.hivenet.is/oddikennari/photo.htm .
Endilega kíkið á hana og segið mér hvað ykkur finnst.
Öddi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.5.2007 | 13:32
Íslendingar að tapa sínu fyrsta stríði?
Hvatt til stefnubreytingar í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.5.2007 | 17:03
Þvílík ósvífni!
Ég er eðlilega einskær aðdáandi arnarins og því kannski svolítið hlutdrægur. Þar fyrir utan er ég aðdáandi náttúrunnar og þeirrar fjölbreytni sem er að finna í henni. Fjöldi dýrategunda eru í útrýmingarhættu í heiminum og eru flest þróuð samfélög sammála um að þær tegundir beri að vernda út í ystu æsar. Þess vegna hryggir það mig mjög að lesa um slíka umgengni við eitt mesta stolt íslenskrar náttúru, íslenska haförninn.
Við tókum geirfuglinn í nefið og höfum nagað okkur í handarbökin síðan. Ætlum við sömu leið með örninn?
Hegðun sem þessa heyrir maður í fréttum frá Afríku þar sem veiðiþjófar drepa sjaldgæf dýr til að selja eftirsóttar afurðir til gráðuga Vesturlandabúa. Þetta er Íslendingum til skammar og á ekki að líðast. Hvað er gert við veiðiþjófa í Afríku? Þeir sleppa allavega ekki með klapp á bakið.......
(Höfundur er ákafur dýraverndarsinni og andstæðingur fáfróðra molbúa)
Illa lítur út með arnarvarp nú í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.5.2007 | 23:16
Góðar fréttir
Forsetinn við góða heilsu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.5.2007 | 23:01
Auglýsingataktík Sjálfstæðisflokksins??
Ég lá í mestu makindum og horfði á Kompás, þar sem verið var að grafa undan kvótakerfinu og eins og gengur og gerist kom auglýsingahlé. Þar sá ég auglýsingu frá Sjálfstæðisflokknum þar sem Geir Haarde og Þorgerður Katrín börðu sér á brjóst og hrósuðu happi yfir frábærum árangri í efnahagslífinu. Þeim til fulltingis var allskonar fólk, sérvalið af auglýsingastofunni sem makar krókinn og hinum og þessum upplýsingum var skotið inn á skjáinn með reglulegum millibili. Ein staðreynd þar vakti athygli mína, ekki síst þar sem Sjálfstæðisflokkurinn virðist telja að hún sé til merkis um frábæra hagstjórn sína. Því var semsagt fleygt fram að 30 þúsund Íslendingar stundi nú nám eða störf í útlöndum!!
En ég spyr: Er það eitthvað til að stæra sér af???
Flestir þeir sem ég þekki og búa í útlöndum gera það m.a. vegna þess að:
- nám sem þeir stunda er ekki í boði hér heima
- það er ódýrara að stunda nám erlendis, sérstaklega ef þú átt börn
- laun eru hærri og dýrtíðin ekki jafn mikil
- velferðarþjónusta er boðleg og eftirsóknarverð, ekki síst á Norðurlöndum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.4.2007 | 22:22
Ætli boðskapurinn skili sér?
Brýnasta hagstjórnarverkefnið að ná stöðugleika í þjóðarbúskapnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 22:55
Frumleg leið til að nýta orkuna....
Af hverju datt mér þetta ekki í hug? Af hverju ekki að byggja álver til að nýta raforkuna sem til er í landinu? Þetta er enn eitt dæmið um það að fólk virðist ekki heyra neitt annað en álver, álver, álver.....
Ég frétti meira segja að heyrnarlaus maður hafi verið staddur þar sem hópur fólks var að tala saman og heyrði náttúrulega ekki orð af því sem sagt var. Nema hvað að einhver segir orðið "álver". Hrekkur ekki minn maður upp og spyr: "Hva... Hvað voruði að segja um álver? Hvar á að byggja álver?" Aðrir nærstaddir lofuðu erlenda auðjöfra og sögðu: "Kraftaverk!!!"
Það fyndnasta í þessu öllu saman er að ansi margir Íslendingar eru eins og þessi heyrnarlausi maður. Heyrir ekki boffs þangað til minnst er á álver og eru þá meira en til í tuskið.
Undanfarnar vikur hefur verið bent á ótal aðrar leiðir til að nýta orkuna og fá fyrir nýtinguna fleiri störf, meiri verðmæti og umhverfisvænni iðnað, s.k. hátækniiðnað á borð við gagnageymslu og vefþjónarekstur. Það er því miður fáir sem hlusta á svoleiðis hjal.........
(Höfundur er ötull stuðningsmaður þungaiðnaðar og mengunar í þágu þjóðarheilla)
Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrita orkusamning vegna álvers í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2007 | 23:14
Það læra menn sem fyrir þeim er haft!
Atburðir sem þessir eru hræðilegir, en það verður hins vega að segja að þeir koma því miður ekkert sérstaklega á óvart. Miðað við drápsfíkn amerískra stjórnmálamanna og hernaðarspekúlanta þá eru svona atburðir nánast óumflýjanlegir. Byssueign Bandaríkjamanna hefur lengi verið í umræðunni og ef menn hafa ekki nú þegar séð Bowling for Columbine, þá er skylda að drífa sig út á næstu leigu. Því það er ekki endilega fjöldinn á byssum sem framkallar svona atburði, heldur gerðir byssanna sem eru í umferð og gildin í samfélaginu.
Það er ljótt að segja þetta en hvenær var Bush síðast "harmi sleginn" yfir sprengjuárásum í Írak sem drepa tugi saklausra borgara á hverjum degi?
Höfundur er einn helsti aðdáandi Bandaríkjanna og George Bush jr.
Bush harmi sleginn vegna fjöldamorðanna í tækniskólanum í Virginíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2007 | 11:49
En ekki hvað?
Þetta kemur ekki á óvart, nema kannski Gerrard. Annars held ég að það sé tímasóun að hafa einhverja með Cristiano á þessum lista, því það mun vekja furðu mína ef hann tekur ekki öll verðlaun sem í boði eru fyrir þetta tímabil, bæði í Englandi og annars staðar.
Hann er klárlega besti leikmaður í heimi um þessar mundir og enginn kemst með tærnar þar sem hann var með hælana fyrir viku.
"Gaman" að sjá hvað Chelsea eru annars alltaf "öruggir" á því.....
Þrír frá Man.Utd tilnefndir í vali á knattspyrnumanni ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2007 | 20:42
About bloody time......
Mikið varð ég glaður að sjá þessa frétt. Loksins, loksins, loksins ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að fara að vinna í samfélagsþjónustunni, sem hann hefur því miður ekki haft tíma eða bolmagn til að gera þau 16 ár sem hann hefur setið að völdum. Það er áhugaverð forgangsröðun hjá stærsta stjórnmálaflokki landsins (hvernig sem stendur nú á því) að láta heildina, megnið af íslensku þjóðinni, sem þarf að berjast við að láta enda mætast bíða í 16 ár eftir því að tekið sé til við að styrkja velferðar- og menntaþjónustuna í landinu. Það var auðvitað mikilvægara að taka fyrstu 16 árin af stjórnartíð Sjálfstæðismanna í að gefa ríkisfyrirtæki og lækka skatta á tekjuhæstu þjóðfélagsþegnanna.
NÚNA, 16 árum seinna er svigrúm til að auka framlög til menntamála og styrkja velferðarkerfið. Þjóðin stendur í þakkarskuld við Sjálfstæðisflokkinn! Fátækir Íslendingar gráta af gleði við fréttirnar og þakka Guði fyrir. Æ, já. Það er engin fátækt á Íslandi. Gleymdi mér aðeins......
Vill leiða þjóðina til nýrra tíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)