17.5.2007 | 13:32
Íslendingar að tapa sínu fyrsta stríði?
Þessar fréttir koma ekki á óvart. Þetta stríð er hins vegar að reynast mestu mistök sem Vesturlönd hafa gert á áratugi. Að hugsa sér að Íslendingar hafi stutt það að þetta stóra land yrði lagt í rúst og framtíð þess gerð að engu. Það sorglega er að þetta stríð snérist alltaf um peninga og völd en ekki að frelsa þjóð í ánauðum. Enn ein sönnun þess að Kapítalisminn mun leggja heiminn í rúst, og á þeim rústum mun mannkyn byggja sósíalískt samfélag eins og spáð hefur verið....... Þar verð ég!!
Hvatt til stefnubreytingar í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
gangi ykkur vel að byggja upp sósíalískt draumaland! vona samt að það komi ekki til þess að heimurinn verði lagður í rúst fyrst.
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 20:41
Stríðið er unnið - það er bara erfiðara að vinna friðinn!
Vilborg Traustadóttir, 17.5.2007 kl. 23:24
Ánægður með staðfestu þína bróðir!!!
Hið sósíalíska samfélag er hin fallega mynd biblíunnar um eilífa samkennd og samhygð, þó er trúin þar tekin af guði og sett á heildina.
Gott að þú ert trúaður!
Að sjálfsögðu var þetta stríð mistök, en alvarleikinn liggur ekki bara í því heldur í ofuráherslu Asíu á hervæðingu einnig. Íran, Indland, Pakistan, Kóreurnar báðar, Kína og kjaftasagan segir Japan líka eru á fullri ferði í aukningu herstyrks. Það er nokkuð sem veldur mér áhyggjum einnig.......
Magnús Þór Jónsson, 18.5.2007 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.