15.7.2007 | 23:55
Klukkaður af föður mínum.....
Jæja gott fólk, þá verð ég að svara þessu klukki föður míns. La GÓ:
1. Ég ætlaði mér aldrei að verða annað en kennari frá því ég man eftir mér. Living the dream!
2. Ég tel mig vera hreinræktaðan, bókstafstrúaðan sósíalista og skammast mín ekkert fyrir það.
3. Ég er með 3 tattoo.
4. Ég er um þessar mundir að smíða pall við íbúðina mína.
5. Ég elska ketti!!!!
6. Ég er frekar latur að eðlisfari, en duglegur til vinnu. (Skemmtileg þversögn)
7. Ég er með 26,8 í forgjöf í golfi
8. Ég á nánast allar bækurnar eftir Terry Pratchett og les þær í þaula.
Þar hafiði það. Ég klukka hér með Guðrúnu Völu frænku mína og Þorgerði, formann Kennarafélags Reykjavíkur.
Góðar stundir
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég biðst forláts. Á hægri öxl ber ég kínverskt tákn sem táknar sigur, á vinstri kálfa ber ég stafinn E til að minna mig á að ég er Eastcoast maður og milli herðablaða ber ég örn með útbreidda vængi
Örn Arnarson, 16.7.2007 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.