Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Ekki skánar það

Maður veltir því fyrir sér hvernig maður á að hafa sig út úr skuldafeninu.  Þessi aðgerð á eftir að keyra upp vísitölu neysluverðs og þar með lánin, sem hækka nóg hjálparlaust.  Þetta er síst til að örva steindautt atvinnulífið og ég sem hélt að nú þyrfti einmitt að örva það svolítið.  Ríkissjóður græðir sjálfsagt lítið á þessu þegar upp er staðið, en það er um leið augljóst hver á að borga brúsann eftir sukkið.  Hækkun skatta, hækkun á olíugjaldi, hækkun á áfengi (reyndar er mér skítsama um hækkun á tóbaki - tími til kominn).  Ekki eru það peningamennirnir og sukkararnir sem eiga að beila sjálfa sig út.  En er maður hissa á því?

 Ekki ég, þetta er akkúrat það sem maður býst við af þessari vonlausu ríkisstjórn.


mbl.is Þrýsta vísitölunni upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Örn Arnarson
Örn Arnarson
Ég starfa sem grunnskólakennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.  Um þessar mundir er ég þó einna helst áhugaljósmyndari í harkinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband