Leita í fréttum mbl.is

Mikið vatn runnið til sjávar

Sæl veriði.

Síðan síðast er þetta helst:

  • Við settum upp leikverkið Dýrabær með unglingunum í Heiðarskóla.  Það tókst með eindæmum vel eins má m.a. lesa á bloggi föður míns sem fer fögrum orðum um stykkið.
  • Ég gaf mynd á kvennakvöld ÍA á dögunum og seldist hún á uppboði á yfir 40 þús. krónur.  Það fannst mér mjög gaman að heyra og eru þær stelpur vel að þeim krónum komnar.
  • Ég var endurkjörinn í samninganefnd FG með dúndrandi kosningu á aðalfundi félagsins.  Ég þakka það traust sem mér var sýnt með því, nú verður nóg að gera næstu misseri.
  • Panil kom aftur saman og spilaði í kveðjupartíi fyrir hann Valla okkar, söngvara og konu hans hana Marellu.  Það var gríðarlega skemmtilegt og mæltist vel fyrir hjá viðstöddum, sem margir hverjir voru rótgrónir aðdáendur bandsins goðsagnakennda.
  • Ég hef verið töluvert duglegur að fara út og taka myndir í nágrenni Akraness.  Afraksturinn fer að stórum hluta inn á síðu sem heitir www.istockphoto.com.  Ég stefni að auki að því að halda sýningu á Akranesi í sumar.  Sú vinna á eftir að fara í gang síðar.

Þangað til næst bið ég að heilsa

 

Öddi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorgerður Laufey Diðriksdóttir

til hamingju með afrasktur mikillar vinnu.

þú ert vel að þessu kominn.

þú ert kyndilberi ungra kennara sem hefur áhuga á starfinu, með rætur sem ná langt niður í grasrót kennarasamfélagsins. En fyrst og fremst ert þú með eyru og augu sem skynja breytingar á kennarastarfinu.

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, 19.3.2008 kl. 11:05

2 Smámynd: Magnús Þór Jónsson

Hæ litli! (Heilsubælið)

Gaman að sjá þig á svæðinu aftur - reyndu nú að skella inn einu sinni og einu sinni.......

Sjáumst í skírn á Hellissand, the father of all Sands tomorrow!

Magnús Þór Jónsson, 21.3.2008 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Örn Arnarson
Örn Arnarson
Ég starfa sem grunnskólakennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.  Um þessar mundir er ég þó einna helst áhugaljósmyndari í harkinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband