Leita í fréttum mbl.is

Pallatónleikar nr. 1 hjá Hræinu

Sælinú!!

Í kvöld verða haldnir fyrstu pallatónleikarnir af mörgum hjá kassagítar-pönksveitinni Hræ.  Nýji pallurinn MINN á Smáraflötinni varð fyrir valinu og munu þar stíga á stokk allir upprunalegir meðlimir Hræs, þ.e. ég, Sammi og Valli.  Hræið ætlar að frumflytja 1 nýtt frumsamið lag sem hefur vinnuheitið Rollurnar og er mjög skemmtilegt, auk þess að covera m.a. Cypress Hill, Violent Femmes, Panil, Ramones og Bad Religion.  Tónleikarnir hefjast stundvíslega einhvern tímann eftir klukkan 8 og lýkur stundu síðar, en þá ætlar hljómsveitin að leika fyrir fjöldasöng og dansi frameftir nóttu (sennilega til 23:00 til að styggja ekki nágranna).

Flestir velkomnir!!  (Allir væri of sterkt til orða tekið og gæti skapað vandræði.  Semsagt allir sem þekkja okkur og/eða hafa áhuga á Akurnesískri tónlist mega mæta)

Það er rétt að taka það fram að Hræ ætlar í tónleikaferð um Akranes á næstu vikum og spila á pöllum hjá fólki, þegar eru partí allavega.  

Call me!!

Öddi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Fer um héraðið á morgun eftir hádegi.  Verða tónleikarnir ennþá?

Vilborg Traustadóttir, 21.7.2007 kl. 21:16

2 Smámynd: Örn Ragnarsson

Til hamingju með tónleikana og nýja PALLINN og nýja bandið. Hálf finnst mér nafnið órómantískt en þó lýsandi.

Hlakka til að skoða smíðina og kannski að fá að hlusta á Hræið.

Sjáumst svo á föstudaginn á ættarmóti aldarinnar.

Kv

Örn

Örn Ragnarsson, 22.7.2007 kl. 09:18

3 identicon

hvernig er það, er hægt að panta hræið á palla í öðrum landshlutum???

Drífa Þöll (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 10:40

4 identicon

Sæll frændi,ég vissi að einhversstaðar  í ættinni leyndist gítarleikari.  Þú mætir með gítarinn á ættarmótið og reynir að láta okkur syngja er það ekki? Sjáumst á föstudaginn.

kveðja Gúa

Gúa frænka (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Örn Arnarson
Örn Arnarson
Ég starfa sem grunnskólakennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.  Um þessar mundir er ég þó einna helst áhugaljósmyndari í harkinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband